Fara í aðalefni

Menntun

Sam­komu­lag um að efla kennslu fyr­ir nem­end­ur með ís­lensku sem ann­að tungu­mál

17. mars 2026

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun áfram styrkja verkefni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) um að efla kennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál í leik- og grunnskólum utan Reykjavíkur.

Frá undirritun samkomulagsins.
Frá undirritun samkomulagsins.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun áfram styrkja verkefni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) um að efla kennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál í leik- og grunnskólum utan Reykjavíkur. Jón Björn Hákonarson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Þórdís Jóna Sigurðardóttir forstjóri MMS og undirrituðu samkomulag þessa efnis í síðustu viku. 

Fjárstuðningur Jöfnunarsjóðs nemur 24 milljónum á ári en sjóðurinn hefur styrkt þetta verkefni um árabil.

Stuðningur og kennsluráðgjöf

Með samkomulaginu tekur MMS að sér að veita öllum sveitarfélögum utan Reykjavíkur stuðning og kennsluráðgjöf vegna nemenda með íslensku sem annað tungumál. Það verður gert í gegnum þróunarverkefnið MEMM – menntun móttaka menning.

Með stuðningi og ráðgjöf er m.a. átt við móttöku og menntun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn, almennar leiðbeiningar til skóla, námskeið fyrir starfsfólk skóla, útgáfu námsefnis og annarra verkfæra sem og ráðgjöf um íslensku sem annað tungumál, fjöltyngi, fjölmenningu og önnur þau málefni sem tengjast móttöku og menntun fjöltyngdra barna.

Sérfræðingur í annars máls fræðum og fjölmenningu mun starfa gagngert á vegum MMS vegna þessa verkefnis og mun ráðgjöf og stuðning til sveitarfélaga og skóla með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Hlutverk Sambands íslenskra sveitarfélaga samkvæmt samkomulaginu er að gæta hagsmuna sveitarfélaga utan Reykjavíkur sem njóta þjónustu samkvæmt samningnum.