Vinnuvernd
Málþing um heilbrigða vinnustaðamenningu - upptaka
13. mars 2026
Upptaka frá málþinginu: Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu? sem fór fram á Grand hóteli 12. mars er nú aðgengileg og verður hægt að horfa á hana næstu fjórar vikur.

Á málþinginu var fjallað um samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum og þann lærdóm sem má af því draga. Í janúar kom út skýrsla sem var afurð samstarfsverkefnisins, og má lesa hana hér.
Fjallað var um þau bjargráð sem skólar og aðrir vinnustaðir hafa til að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu og hvernig má innleiða þau og nýta. Fyrirlesarar komu fram með fjölmargar jákvæðar reynslusögur, dæmi og hagnýt verkfæri sem geta gagnast vinnustöðum af öllum stærðum og gerðum.