Fræðslumál

PMTO-mið­stöð fyr­ir for­eldra barna með hegð­un­ar­vanda

5. febrúar 2026

Mennta- og barnamálaráðherra og borgarstjóri undirrituðu í gær samning um rekstur PMTO-miðstöðvar sem ætlað er að þjóna öllu landinu.

PMTO-foreldrafærni er gagnreynt meðferðarúrræði fyrir foreldra barna með samskipta- eða hegðunarerfiðleika sem hefur reynst afar vel hér á landi.

Aðferðin hefur verið notuð hér á landi í 25 ár með góðum árangri. Í dag bjóða tíu sveitarfélag víðs vegar um landið foreldrum uppá PMTO-fræðslu. Árlega fá um 700 foreldrar þjónustu, auk þess að margir skólar njóta góðs af skólaútgáfu aðferðarinnar.

Í samningnum felst að Reykjavíkurborg tekur að sér að reka PMTO-miðstöð sem þjónar landinu öllu. Keðjan, sem er starfseining innan Reykjavíkurborgar sem veitir stuðningsþjónustu fyrir börn, veitir miðstöðinni faglega forystu, í samstarfi við rannsóknarstofu hjá Menntavísindasviði HÍ. Unnið verður að því á samningstímanum að finna miðstöðinni stað til framtíðar.

Foreldrar sem vilja sækja um þjónustuna sækja um hana í sínu sveitarfélagi, ýmist í gegnum skóla barnsins eða hjá velferðar- eða skólaþjónustu sveitarfélagsins.

Nánar á vef Stjórnarráðsins.