Styrkir
Opið fyrir umsóknir í LIFE áætluninni
13. maí 2026
Mikil tækifæri fyrir sveitarfélög til að fjármagna verkefni sín á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Nú þegar hafa fjölmörg islensk sveitarfélög sótt um, og hlotið, styrki frá LIFE vegna margvíslegra verkefna að andvirði hundruð milljóna króna.

LIFE er eina áætlun ESB sem styður eingöngu við umhverfis- og loftslagsaðgerðir og býður hún upp á fjölmörg tækifæri á því sviði. LIFE er innleiðingaráætlun, ekki rannsóknaráætlun, sem þýðir að verkefnum er ætlað að stuðla að því að stefnur og löggjöf í þágu umhverfis- og loftslagsmála megi verða að veruleika. Allar opinberar stofnanir og einkaaðilar, hvort sem eru fyrirtæki eða frjáls félagasamtök, geta sótt um og hvatt er til samstarfs sem flestra aðila sem geta lagt sitt af mörkum svo verkefnin geti haft sem best áhrif á íbúa. Undir LIFE eru fjórar undiráætlanir með ólíkar áherslur og ættu flest verkefni á þessu sviði að geta fundið sér farveg innan einhverrar þeirra. Þar að auki eru ólíkar gerðir styrkja undir hverri og einni undiráætlun.
Undiráætlanirnar eru:
• Náttúra og líffræðilegur fjölbreytileiki
• Hringrásarhagkerfið og lífsgæði
• Loftslagsbreytingar; aðlögun og aðgerðir
• Orkuskipti
Verkefni í LIFE geta spannað allt frá 18 mánuðum til 10 ára og fer lengd þeirra eftir eðli undiráætlunar og gerð styrks. Styrkupphæðir spanna allt frá 500.000€ til 12M €. Skilafrestir eru flestir í september en skrif á umsóknum tekur tíma og því um að gera fyrir áhugasöm að hefja undirbúning sem fyrst.
Frekari upplýsingar um LIFE áætlunina er að finna á vefsíðu Rannís og styrkjagátt ESB. Hjá Sambandinu starfar sérfræðingur í sjóðasókn og hægt er að senda bón um ráðgjöf á thjonusta@samband.is.