Fara í aðalefni

Evrópusamvinna

Árs­fund­ur LIFE áætl­un­ar­inn­ar á Ís­landi

20. maí 2026

Ársfundur LIFE áætlunarinnar á Íslandi verður haldinn fimmtudaginn 28. maí í Norræna húsinu.

Húsið opnar kl. 8.30 en dagskrá hefst kl. 9:00 og stendur til kl. 16:00. Á fundinum verða kynntar opnar auglýsingar eftir umsóknum og kynnt verða þau íslensku verkefni sem þegar hafa hlotið LIFE styrki. Auk þessa verða kynnt önnur styrkjatækifæri á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á fjármögnun grænna verkefna en þó þarf að skrá þátttöku. Frekari upplýsingar og skráning er á vefsíðu Rannís.