Fara í aðalefni

Sambandið

Fyrsta Ráð­hús­fræðsla kjör­tíma­bils­ins - upp­taka

20. maí 2026

Fyrsta Ráðhúsfræðsla kjörtímabilsins 2026-2030 fór fram þriðjudaginn 19. maí. Helga María Pálsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Sambandsins fjallaði þar um fyrstu skref nýrra sveitarstjórna.

Frá Arnarstapa
Frá Arnarstapa

Í erindi sínu fjallaði Helga meðal annars um hið mikilvæga hlutverk sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur innan stjórnsýslunnar og það hvernig Sambandið nýtist kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga, m.a. í gegnum Sveitarfélagaskólann. Þá fjallaði hún um fyrsta fund sveitarstjórnar og um ráðningu framkvæmdastjóra.

Að erindi hennar loknu svaraði hún spurningum. Alls skráðu sig 230 manns á fundinn sem fór fram á Zoom.

Smelltu hér til að horfa á upptöku frá fundinum

Tengill á Sveitarfélagaskólann