Evrópusamvinna
Persónuvernd og öryggismál í Evrópu til umfjöllunar á fundi Sveitarstjórnarvettvangs EFTA
26. júní 2025
Sveitarstjórnarvettvangur EFTA kom saman í Brussel dagana 12.-13. júní 2025. Að þessu sinni voru persónuverndarmál og öryggismál í Evrópu megin umfjöllunarefni vettvangsins.

Umfjöllun Sveitarstjórnarvettvangs EFTA
Á fundinum var sjónum vettvangsins beint að endurskoðun á löggjöf ESB sem varðar persónuvernd. Endurskoðunin felur m.a. í sér tillögur um að einfalda núverandi löggjöf. Þar sem löggjöfin nær til allra sviða þar sem opinberir aðilar meðhöndla persónuupplýsingar er þessi endurskoðun mikilvæg fyrir íslensk sveitarfélög. Meðal þess sem lagt er til er að draga úr kvöðum og skýrslugerð fyrir stofnanir og fyrirtæki sem eru með færri en 750 starfsmenn.
Í ályktun Sveitarstjórnarvettvangs EES EFTA er vel tekið í tillögur ESB um að draga úr skriffinnsku, lækka kostnað og nútímavæða persónuverndarlöggjöf ESB. Þá er lagt til að ESB gangi enn lengra og að sérstaklega verði horft til lítilla sveitarfélaga í því tilliti.
Þá var fjallað um áætlun ESB varðandi öryggismál í Evrópu og viðbúnað ríkja ESB við þeirri ógn sem stafar að íbúum álfunnar. Markmiðið er að efla getu ríkja ESB við að koma í veg fyrir og bregðast við ógnum og hættuástandi. Einn af hornsteinum áætlunarinnar er að fá öll stjórnsýslustig og alla aðila samfélagsins til að taka þátt í að tryggja borgaralegan viðbúnað.
Í ályktun Sveitarstjórnarvettvangs EES EFTA eru EES EFTA ríkin hvött til þess að fylgjast vl með áætlunum ESB hvað þetta varðar og hvort og þá með hvaða hætti ríki EES EFTA komi að þessari áætlun. Þá er hlutverk sveitarfélaga og nálægð þeirra við íbúa áréttað og því mikilvægt að sveitarfélög séu höfð með í ráðum á öllum stigum málsins.
Sveitarstjórnarvettvangur EFTA
Sveitarstjórnarvettvangur EFTA tók til starfa árið 2010 og er hlutverk hans að gæta hagsmuna sveitarstjórna aðildarríkja EFTA gagnvart ESB. Í honum eiga sæti sex kjörnir fulltrúar á sveitarstjórnarstigi frá Íslandi og Noregi og tveir áheyrnarfulltrúar frá Sviss. Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og landshlutasamtök sveitarfélaga tilnefna fulltrúa af hálfu Íslands. Formaður Sveitarstjórnarvettvangs EES EFTA er Rósa Guðbjartsdóttir.
Fulltrúar Íslands á fundi Sveitarstjórnarvettvangs EFTA 12.-13. júní 2025
- Rósa Guðbjartsdóttir, Hafnarfjörður, skipuð af stjórn Sambandsins
- Helga Þórðardóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík
- Berglind Harpa Svavarsdóttir, Samband sveitarfélaga á Austurlandi
- Anton Kári Haraldsson, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
- Lára Halldóra Eiríksdóttir, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
- Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum