Fara í aðalefni

Fræðslumál

Opið fyr­ir um­sókn­ir í Sprota­sjóð 2025

27. nóvember 2024

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla 2025. Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2025 kl. 15:00. Sjóðurinn styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við menntastefnu stjórnvalda og aðalnámskrá.

Árið 2025 eru áherslusvið sjóðsins:

  • Leikurinn sem leið til náms.
  • Gervigreind.
  • Grunnþáttur menntunar - Læsi.

Hægt er að senda inn umsóknir sem ekki falla undir þessi áherslusvið. Allar umsóknir eru metnar út frá matskvarða sjóðsins.

Á hverju ári styrkir sjóðurinn tugi verkefna alls staðar af landinu sem stuðla að þróun og nýsköpun í skólastarfi. Árið 2024 veitti Sprotasjóður 59,8 milljónir króna til 32 verkefna.

Rannís sér um umsýslu Sprotasjóðs fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins.

Hér er hægt að lesa meira um Sprotasjóð

Fyrir nánari upplýsingar eða ef spurningar vakna má hafa samband við Óskar (515 5839) eða Skúla (515 5843) eða senda fyrirspurn á sprotasjodur@rannis.is