Landsþing sveitarfélaga fer fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri dagana 23.-25. september. Jón Björn Hákonarson, fráfarandi formaður, opnaði þingið.
Landsþing hefur æðsta vald í málefnum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Landsþing kemur saman árlega, að jafnaði í mars eða apríl. Á því ári sem almennar sveitarstjórnarkosningar er þingið haldið á Akureyri í september eða október, og er það vettvangur stefnumótunar sveitarstjórnarstigsins fyrir kjörtímabilið. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, tekur við sem formaður Sambandsins í lok þingsins á föstudag en hann var kosinn formaður í júlí.
Í ávarpi sínu ítrekaði Jón Björn að á Íslandi eru tvö stjórnsýslustig. Ríki og sveitarfélög. Tvö stjórnsýslustig sem þjóna sama fólkinu. Sömu fjölskyldunum. Sömu börnunum. Sömu öldruðu íbúunum. Sama atvinnulífi. Sömu íbúunum sem kjósa til þess fulltrúa til að sinna samfélaginu.
„Samt er það allt of oft eins og annað stjórnsýslustigið gleymi hinu og að hlutverk þeirra eru áþekk og ættu að kalla á þétta samvinnu þeirra til að ná markmiðum fyrir íbúa þeirra. Alltof oft verða sveitarfélögin að taka við ákvörðunum sem hafa þegar verið teknar annars staðar. Hjá ríkinu. Ákvarðanir sem hafa bein áhrif á okkar starfsemi, okkar fjárhag og þá þjónustu sem við veitum íbúum,“ sagði hann ennfremur.
Á morgun, fimmtudag, taka við störf umræðuhópa þar sem grunnur að stefnumörkun Sambandsins næstu fjögur árin er lagður. Þinginu verður svo slitið í hádeginu á föstudag.