Fara í aðalefni

Landsþing

Ný stjórn Sam­bands­ins

25. september 2026

Ný stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga var kjörin á Landsþingi Sambandsins sem fram fór í Hofi á Akureyri dagana 23.-25. september.

Almar Guðmundsson, nýr formaður Sambandsins.
Almar Guðmundsson, nýr formaður Sambandsins.

Formaður stjórnar er Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, en hann var kjörinn formaður stjórnar í sumar. Stjórnin situr til næstu fjögurra ára og er skipuð eftirfarandi einstaklingum:

Reykjavíkurborg:

Björg Magnúsdóttir, Viðreisn.

Pétur Marteinsson, Samfylking.

Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, Sjálfstæðisflokkur.

Suðvesturkjördæmi:

Almar Guðmundsson, formaður. Sjálfstæðisflokkur.

Hildur Rós Guðbjargardóttir, Samfylking.

Norðvesturkjördæmi:

Auður Kjartansdóttir, Sjálfstæðisflokkur.

Haukur Þór Hauksson, Miðflokkur.

Norðausturkjördæmi:

Ragnar Sigurðsson, Sjálfstæðisflokkur.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Framsóknarflokkur.

Suðurkjördæmi:

Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokkur.

Hjalti Þór Vignisson, Framsóknarflokkur.

Í stjórn eiga sæti ellefu aðilar sem öll hafa fengið kosningu í sveitarstjórn síns sveitarfélags. Við kjör í stjórn er landinu skipt upp í fimm kjörsvæði sem taka mið af skiptingu landsins í kjördæmi vegna Alþingiskosninga með þeirri undantekningu að Reykjavík er eitt kjörsvæði.