Fræðslumál
Opið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026
12. maí 2026
Er framúrskarandi kennari, verkefni og/eða menntaumbætur í þínu sveitarfélagi? Nú getur þú sent inn tillögur um tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 sem veitt verða á Bessastöðum í nóvember næstkomandi.

Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.
Verðlaunin eru í fimm flokkum:
- Framúrskarandi skóla- eða menntaumbætur, ein verðlaun veitt til skóla eða annarrar menntastofnunar.
- Framúrskarandi kennari, ein verðlaun veitt til kennara.
- Framúrskarandi þróunarverkefni, ein verðlaun. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- og frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum.
- Framúrskarandi iðn- og verkmenntun, ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- og menntastofnun .
- Hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka sem þykja hafa skarað fram úr.
Tilnefningar skulu hafa borist fyrir 1. júní n.k.
Vakin er athygli á því að hægt er að fá ráðgjöf og aðstoð við tilnefningar með því að hafa samband við verkefnisstjóra verðlaunanna, Ingvar Sigurgeirsson, í síma 896 3829 eða í tölvupósti: ingvars(hja)hi.is
Frekar upplýsingar og tilnefningarform eru hér: https://skolathroun.is/menntaverdlaun/
Myndband frá Unni Ösp Guðmundsdóttur, verkefnastjóra á leikskólanum á Grænuvöllum, sem hlaut viðurkenningu 2025.