Kjaramál
Ný upplýsingasíða um virðismatsvegferð opinberra vinnuveitenda og KÍ
20. febrúar 2026
Jafnlaunastofa hefur opnað nýja upplýsingasíðu þar sem hægt er að fylgjast með framgangi virðismatsverkefnis opinberra vinnuveitenda og Kennarasambands Íslands.

Verkefnið byggir á innanhússtillögu ríkissáttasemjara sem aðilar undirrituðu 25. febrúar 2025.
Á síðunni eru birtar lykilupplýsingar um verkefnið hjá Jafnlaunastofu og sameiginlega þróun virðismatskerfis sem ætlað er að skapa hlutlægar og málefnalegar forsendur fyrir mati á virði starfa kennara.