Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum
Ný stjórn og kallað eftir jafnræði í orkukostnaði á aðalfundi SSKS
28. október 2026
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum (SSKS) var haldinn 7. október 2026 á Hilton Reykjavík.

Á fundinum var samþykkt samhljóða ályktun þar sem lögð er áhersla á að jafna orkukostnað milli landsvæða og tryggja íbúum, fyrirtækjum og sveitarfélögum á köldum svæðum sambærileg búsetu- og rekstrarskilyrði og annars staðar á landinu.
Meðal þess sem kallað er eftir er að tekjur af jöfnunargjaldi raforkudreifingar skili sér að fullu til jöfnunar orkukostnaðar. Þá er lögð áhersla á stuðning vegna rafkyndingar hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum, endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna varmadæla og annarra orkusparandi lausna og aukinn stuðning við jarðhitaleit á köldum svæðum.
Aðalfundurinn lýsti jafnframt áhyggjum af fyrirhugaðri 40 milljóna króna lækkun framlaga til jöfnunar húshitunar og lagði áherslu á að tryggja þurfi raforkuöryggi heimila og sveitarfélaga bæði hvað varðar afhendingu og verð.
Fundurinn færði jafnframt Herði Arnarsyni þakkir fyrir gott og farsælt samstarf við samtökin og áherslu hans á afhendingaröryggi raforku og sanngjarnt orkuverð fyrir heimili um land allt.
Ný stjórn kjörin
Á fundinum var ný stjórn SSKS kjörin, og er hún skipuð eftirfarandi aðilum:
Aðalstjórn
- Íris Róbertsdóttir, Vestmannaeyjabæ, formaður
- Björn Ingimarsson, Vopnafjarðarhreppi
- Kristinn Jónasson, Snæfellsbæ
Varastjórn
- Gerður Björk Sveinsdóttir, Vesturbyggð
- Hjalti Þór Vignisson, Sveitarfélaginu Hornafirði
- Lilja Björg Ágústsdóttir, Dalabyggð