Fara í aðalefni

Umhverfis Ísland

Græn­ar fjár­fest­inga­áætlan­ir: Opn­að fyr­ir styrk­umsókn­ir

26. október 2026

Íslenskum sveitarfélögum stendur nú aftur til boða að sækja um fjárhagslegan og tæknilegan stuðning til að flýta fyrir fjárfestingum í endurnýjanlegri orku og loftslagsaðgerðum. Verkefnið European City Facility býður nú evrópskum sveitarfélögum í 8. sinn að sækja um styrki og sérfræðiráðgjöf til að útbúa fjárfestingaráætlun vegna verkefna sem flýta fyrir orkuskiptum. Íslensk sveitarfélög hafa haft aðgang að þessum stuðningi frá árinu 2023 og geta nú sótt um í fjórða skiptið. Þrjú íslensk sveitarfélög hafa sótt um í fyrri úthlutunum og hlutu þrjú þeirra styrk.

Opnað verður fyrir umsóknir þann 26. október og hægt verður að sækja um til 21. desember 2026. Eftir það verður hægt að sækja um í apríl og október árið 2027 en það verða líklega síðustu tækifærin til að sækja þennan stuðning.

Verkefnið byggir á margra ára reynslu en nú þegar hafa rúmlega 400 sveitarfélög í Evrópu fengið stuðning við að þróa fjárfestingarhugmyndir fyrir aðgerðir sem stuðla að notkun á endurnýjanlegri orku og orkusparnaði. Þegar hafa þessar áætlanir skilað 1,8 milljarði evra í fjárfestingum (rúmlega 250 milljarðar ISK) en mun fleiri verkefni eru í farvatninu.

Kynningarfundur verður haldinn um verkefnið og umsóknarferlið á Teams þann 3. nóvember kl. 15.00. Öll velkomin.

Hér er hlekkur á fundinn