Samtök sjávarútvegssveitarfélaga
Ný stjórn og ályktanir um lagareldi og 5,3% kerfið
28. október 2026
Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, sem haldinn var 7. október, samþykkti samhljóða tvær ályktanir um mikilvæg hagsmunamál sjávarútvegssveitarfélaga.

Annars vegar er kallað eftir því að lokið verði án frekari tafa við nýja heildstæða lagaumgjörð um lagareldi og hins vegar lýst þungum áhyggjum af breytingum og áformum varðandi ráðstöfun aflaheimilda 5,3% kerfisins.
Í ályktun um lagareldi er lögð áhersla á skýrt og fyrirsjáanlegt regluverk sem styðji við ábyrga uppbyggingu og verðmætasköpun. Sérstök áhersla er lögð á að nærsamfélög, sem bera kostnað af innviðum og þjónustu, njóti sanngjarnrar hlutdeildar í þeim verðmætum sem starfsemin skapar og að sveitarfélög hafi raunverulega aðkomu að stefnumótun og ákvörðunum um þróun greinarinnar.
Í ályktun um 5,3% kerfið er lögð áhersla á að aflaheimildir kerfisins styðji atvinnu og byggð, meðal annars með staðbundinni verðmætasköpun og heilsársstörfum. Sveitarfélögin lýsa þungum áhyggjum af skerðingum á línuívilnun og rækju- og skelbótum og kalla eftir því að breytingar á kerfinu verði unnar í nánu samráði við sveitarfélögin.
Ný stjórn kjörin
Á fundinum var ný stjórn samtakanna kjörin og er hún skipuð eftirfarandi aðilum:
Aðalstjórn
- Íris Róbertsdóttir, Vestmannaeyjabæ, formaður
- Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, Dalvíkurbyggð
- Gerður Björk Sveinsdóttir, Vesturbyggð
- Heimir Örn Árnason, Akureyrarbæ,
- Ragnar Sigurðsson frá Fjarðabyggð.
Varastjórn
- Alexandra Jóhannesdóttir, Suðurnesjabæ
- Gylfi Ólafsson, Ísafjarðarbæ
- Hjalti Þór Vignisson, Sveitarfélaginu Hornafirði
Frekari upplýsingar um aðalfundinn og nýja stjórn má finna á vef Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.