Fara í aðalefni

Fjármálaráðstefna

Dreg­ið í happ­drætti Fjár­mála­ráð­stefn­unn­ar 2026

27. október 2026

Gestum Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga stóð til boða að taka þátt í happdrætti sem í fólst að taka samtalið við nokkra af kynningarbásunum á staðnum. Þátttakendur heimsóttu kynningarbása, fengu klippu í nafnspjaldið sitt og gátu að því loknu skilað því í pott sem dregið var úr.

Gestir á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2026

Elín Dögg er vinningshafi í happdrættinu

Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir frá Skagafirði er vinningshafi happdrættisins og fær sent gjafabréf frá DineOut. Við óskum Elínu Dögg innilega til hamingju og þökkum fyrir þátttöku í happdrættinu.

Þetta var í fyrsta sinn sem happdrætti var á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og um 80 ráðstefnugestir tóku þátt í ár.