Fara í aðalefni

Umhverfis Ísland

Ný að­gerða­áætl­un um líf­fræði­lega fjöl­breytni: Auk­inn stuðn­ing­ur við sveit­ar­fé­lög

2. nóvember 2026

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur gefið út nýja aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni fyrir árin 2026–2030. Áætlunin markar fyrsta áfanga í innleiðingu á stefnu Íslands um líffræðilega fjölbreytni og inniheldur aðgerðir á sviði verndar og endurheimtar vistkerfa, þekkingar og vöktunar, landnýtingar og stjórnsýslu.

Sérstaklega er vert að vekja athygli sveitarfélaga á aðgerð 5.1, Samstarf og stuðningur við sveitarfélög, sem miðar að því að efla hlutverk og aðkomu sveitarfélaga að verkefnum sem varða líffræðilega fjölbreytni. Gert er ráð fyrir samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga þar sem þróuð verða verkfæri, verklag og dæmi um lausnir sem sveitarfélög geta nýtt til að samþætta sjónarmið um líffræðilega fjölbreytni betur inn í skipulagsvinnu.

Aðgerðin felur þannig ekki í sjálfu sér í sér ný lögbundin verkefni fyrir sveitarfélög, heldur er henni ætlað að styðja sveitarfélög við að taka tillit til líffræðilegrar fjölbreytni í skipulagi og landnotkun. Meðal þess sem stendur til að þróa eru leiðbeiningar og staðlaður gátlisti fyrir skipulagsvinnu, yfirlit yfir gögn og kortasjár, verklag við mat á verndargildi vistgerða og dæmi um góðar lausnir. Þá er gert ráð fyrir miðlun niðurstaðna til sveitarfélaga með vinnustofum og einskonar lausnabanki.

Tilraunaverkefni með sveitarfélögum

Hluti aðgerðarinnar verður tilraunaverkefni þar sem unnið verður með áskoranir sem tengjast meðal annars landnotkun, vernd og endurheimt vistkerfa og skipulagi strandsvæða. Þar verður einnig horft til þess hvernig móta megi stefnu um landnotkun með hliðsjón af bestu fáanlegu þekkingu um líffræðilega fjölbreytni, verndargildi og ástandi vistkerfa. Nákvæmt fyrirkomulag framkvæmdarinnar liggur ekki fyrir að svo stöddu en aðgerðin er í undirbúningi og er gert ráð fyrir framkvæmd hennar á árunum 2027–2029.

Þátttaka Sambandsins í samráðsferlinu

Sambandið tók virkan þátt í samráði við mótun stefnunnar og sveitarfélögum var meðal annars boðið til sérstaks samráðsfundar vorið 2025 þar sem rætt var um landnotkun og skipulag í þágu líffræðilegrar fjölbreytni og hlutverk sveitarfélaga við náttúruvernd og endurheimt. Sambandið skilaði jafnframt umsögn við mótun stefnunnar þar sem meðal annars var lögð áhersla á faglegan og fjárhagslegan stuðning við sveitarfélög, gott samráð og að breytingar gerðu skipulagsferli sveitarfélaga ekki flóknari eða seinvirkari.

Sambandið mun fylgjast áfram með útfærslu aðgerðarinnar með hagsmuni sveitarfélaga að leiðarljósi.