Lýðræði
Kosningafundur Sambandsins: Afstaða flokka misjöfn
27. nóvember 2024
Samband íslenskra sveitarfélaga stóð fyrir umræðufundi með fulltrúum flokka þriðjudaginn 12. nóvember síðastliðinn. Þórdís Valsdóttir, fjölmiðlakona, stýrði umræðum.
Markmiðið með fundinum að varpa skýrara ljósi á stefnu framboðanna í nokkrum lykilmálum þar sem hagsmunir sveitarfélaga eru umtalsverðir og ná fram upplýstri og fræðandi umræðu um þau.
Ólík afstaða til málefna
Gott samstarf ríkis og sveitarfélaga er grundvallaratriði til að tryggja skilvirka þjónustu og framfarir fyrir samfélagið. Á fundinum voru mál sem brenna á kjósendum og sveitarfélögum til umræðu ásamt þeim áskorunum og tækifærum sem bíða sveitarstjórna í kjölfar kosninganna.
Á myndinni má sjá afstöðu flokkanna í þremur lykilmálaflokkum, en þeir eru fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk, þjónusta vegna fjölþætts vanda barna og aðkomu ríkisins að innviðauppbyggingu sveitarfélaga.
Þátttakendur í kosningafundinum voru: Bergþór Ólafsson frá Miðflokknum, Sandra Sigurðardóttir frá Viðreisn, Arna Lára Jónsdóttir frá Samfylkingunni, Guðmundur Ingi Guðbrandsson frá Vinstri hreyfingunni grænu framboði, Þórdís Valsdóttir fundarstjóri, Inga Sæland frá Flokki fólksins, Baldur Borgþórsson frá Lýðræðisflokknum, Dóra Björt Guðjónsdóttir frá Pírötum, Sanna Magdalena Mörtudóttir frá Sósíalistum, Bryndís Haraldsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum og Ágúst Bjarni Garðarsson frá Framsóknarflokknum.
Sambandið þakkar þeim flokkum sem sendu fulltrúa í umræðurnar og óskar þeim góðs gengis á lokadögum kosningabaráttunnar.