Stafræn vegferð
Fulltrúar frá KOMBIT flytja erindi á stafrænni ráðstefnu sveitarfélaga
20. febrúar 2026
Poul Ditlev Christiansen, forstjóri velferðarsvæða, þróunar og gagna hjá KOMBIT, og Camilla Kragh, skrifstofustjóri velferðar og gagna hjá KOMBIT, koma til landsins til að taka þátt í stafrænni ráðstefnu sveitarfélaga sem fram fer 25. mars næstkomandi í Grósku, en KOMBIT er sameiginlegt stafrænt þróunar- og rekstrarfélag danskra sveitarfélaga sem vinnur að hönnun, innleiðingu og rekstri stafrænnar þjónustu fyrir sveitarfélögin.

Poul mun í erindi sínu fjalla um hvernig öflugt samstarf sveitarfélaga hefur skapað mikinn ábata og verið lykill að farsælli stafrænni þróun sveitarfélaga í Danmörku. Camilla mun fjalla um nýtingu gagna úr stafrænum lausnum sveitarfélaga, með áherslu á hvernig tryggja megi sveitarfélögum aðgengi að eigin gögnum.
Auk erinda sinna munu þau bæði taka þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnunni. Við erum afar ánægð og þakklát fyrir að þau hafi þegið boð um þátttöku og hlökkum til að njóta reynslu þeirra og innsýnar.
Skráningarfrestur á stafrænu ráðstefnuna er til 20. mars og dagskráin hefur verið birt undir viðburði.