Stafræn vegferð
Skráðu þig á árlegu stafrænu ráðstefnuna – framtíð sveitarfélaga í stafrænum heimi!
30. maí 2025
Hin árlega stafræna ráðstefna Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldin þriðjudaginn 10. júní 2025 á Hilton Reykjavík Nordica við Suðurlandsbraut. Ráðstefnan hefst kl. 13:00 og stendur fram eftir degi.
Eins og undanfarin ár býður dagskráin upp á fjölbreytt og spennandi erindi sem varpa ljósi á mikilvægi og áhrif stafrænnar þróunar innan sveitarfélaga. Hér gefst einstakt tækifæri til að sækja sér innblástur, fræðast um árangursrík verkefni og heyra frá sérfræðingum og lykilfólki í stafrænum umbótum.
Dagskráin spannar allt frá ábata stafrænna lausna og nauðsyn stafræns leiðtoga, yfir í samstarf sveitarfélaga og framtíðarsýn Stafræns Íslands – og að sjálfsögðu verður rætt um áhrif gervigreindar í nútímasamfélagi.
Streymi verður í boði fyrir þá sem ekki komast á staðinn, en við hvetjum alla sem hafa áhuga á stafrænum umbótum og þróun innan sveitarfélaga – hvort sem þeir eru starfsmenn, kjörnir fulltrúar eða einfaldlega áhugasamir um málefnið – til að mæta og taka þátt
Ráðstefnugjaldið er 5.500 kr. og skráning er hafin
Skráning og nánar um dagskrá má finna hér: https://www.samband.is/vidburdir/stafraen-radstefna