Almannavarnir

Frum­varp til laga um al­manna­varn­ir í sam­ráðs­gátt

18. júlí 2025

Dómsmálaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi um heildarendurskoðun laga um almannavarnir í Samráðsgátt stjórnvalda.

Um er að ræða endurskoðun á almannavarnarlögum með það að markmiði að efla almannavarnarkerfið svo það verði sem best í stakk búið til að takast á við hvers konar áföll.

Eitt meginmarkmið frumvarpsins er að efla viðbúnað samfélagsins til þess að bregðast við áföllum. Þá er markmið frumvarpsins að efla grunnskipulag almannavarna með því að skýra ábyrgð, skyldur og verkaskiptingu þeirra sem vinna að almannavörnum.

Frumvarpsdrögin má nálgast í Samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur til og með 18. ágúst nk.