Fara í aðalefni

Umhverfis Ísland

Frá­veitu­styrk­ir - opið fyr­ir um­sókn­ir 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir sveitarfélaga um styrki til fráveituframkvæmda. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2025. 

Í fjárlögum ársins 2025 er gert ráð fyrir að 379 m.kr. verði varið til að styðja við sveitarfélög í fráveituframkvæmdum þeirra. Styrkhæfar framkvæmdir eru m.a. við safnkerfi fráveitna, hreinsivirki, dælustöðvar og útrásir, auk verkefna sem miða að hreinsun ofanvatns, m.a. til að draga úr mengun af völdum örplasts. 

Skilyrði fyrir styrkveitingu er að framkvæmdin sé hluti af heildarlausn í fráveitumálum sveitarfélags, í samræmi við áætlun sem hlotið hefur samþykki ráðuneytisins. Kostnaður við framkvæmdir þarf að hafa fallið til eftir 1. janúar 2020 til að teljast styrkhæfur. 

Styrkfjárhæð nemur að jafnaði 20% af staðfestum heildarkostnaði, en getur verið allt frá 15% til 30%. Styrkir eru greiddir út á grundvelli greiddra reikninga og miðað er við að greiðslur fari fram í desember 2025 og janúar 2026. 

Umsóknir skulu berast á eyðublaðavef Stjórnarráðsins, þar sem skráning fer fram með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Umsókninni skal fylgja verk- og tímaáætlun, uppfærðar kostnaðaráætlanir og afrit af greiddum reikningum eftir því sem við á. 

Sveitarfélög eru hvött til að kynna sér skilyrði auglýsingarinnar og reglugerð nr. 1424/2020 um úthlutun styrkja til fráveitna. Umsóknir sem uppfylla ekki skilyrðin verða ekki teknar til umfjöllunar. 

Nánari upplýsingar veitir ráðuneytið á netfanginu urn@urn.is.