Fara í aðalefni

Umhverfis Ísland

Fræðslu­fund­ur um áhrifa­mat vatns­hlota

1. júní 2026

Sambandið vekur athygli sveitarfélaga á fræðslufundi um áhrifamat vatnshlota, sem haldinn verður þann 8. júní frá kl. 9:00 - 15:00.

Á fundinum munu sérfræðingar frá Umhverfis- og orkustofnun, Hafrannsóknastofnun, Veðurstofu Íslands og Náttúrufræðistofnun fjalla um ýmislegt sem varðar mat á áhrifum framkvæmda og starfsemi á vatnshlot. Fundurinn er opinn öllum. Farið verður yfir tilgang matsins, áhrifaþætti og líkleg áhrif þeirra á ástand vatnshlota. Eins verða tekin dæmi um nálgun við gerð áhrifamats.
Húsið opnar 8:30. Þátttakendur eru hvattir til að mæta tímanlega svo tíminn nýtist sem best. Fundurinn verður jafnframt í streymi fyrir þau sem hafa ekki tök á að koma á staðinn.

Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn. Skráning á fundinn er hérna


Dagskrá fundarins

8:40 - Húsið opnar

9:00 – 9:10: Dagskráin og fyrirkomulag dagsins (Sæmundur Sveinsson - UOS)

9:10 – 10:15: Stjórn vatnamála – Lögin, umhverfismarkmið, ástandsflokkun og áhrifamat (Lilja Ólafsdóttir - UOS / Marianne Jensdóttir Fjeld - UOS)

10:15 – 10:40: Hlé

10:40 – 11:10: Efnafræðilegt ástand yfirborðsvatnshlota (Andreas Ströberg - UOS)

11:10 – 11:50: Grunnvatn – Magnstaða, efnafræðilegt ástand og endurafmörkun grunnvatnshlota (Daði Þorbjörnsson - UOS )

11:50 – 12:30 – Matarhlé

12:30 – 14:10: Mat á áhrifum framkvæmda á vatnshlot (Eydís Salome Eiríksdóttir - Hafró, Svava Björk Þorláksdóttir - VÍ, Þóra Hrafnsdóttir – Náttúrufræðistofnun og Hrönn Guðmundsdóttir - Hafró)
Efni fyrirlestursins:
-Helstu þættir sem valda álagi á vatnshlot
-Vatnsformfræði í ám, vötnum, strandsjó og árósavatni
-Svörun lífríkis við ýmsum álagsþáttum

14:10 – 14:30: Kaffi

14:20 – 15:30: Dæmi, spurningar og umræður