Fara í aðalefni

Fjármál

For­send­ur fjár­hags­á­ætl­ana birt­ar á vef Sam­bands­ins

2. júlí 2026

Nú hafa forsendur fjárhagsáætlana 2027-2031 verið birtar á vef Sambandsins ásamt gagnvirkum myndritum þar sem farið er yfir þróun helstu hagstærða yfir það tímabil sem áætlunin tekur til.

Í langa tíð hefur Samband íslenskra sveitarfélaga tekið saman öll helstu atriði sem sveitarfélög hafa í huga við fjárhagsáætlanagerð sína og birt í formi minnisblaðs sem sent hefur verið til allra sveitarfélaga landsins.

Nú hafa þessi atriði verið tekin saman á vefsíðu hjá Sambandinu þar sem allar helstu hagtölur og spár fyrir tímabilið 2027-2031 eru teknar saman og birtar með myndrænum hætti og hlekkjum á viðeigandi vefsíður með ítargögnum. Minnisblaðið sjálft má finna neðst á þessari vefsíðu.

Markmiðið með þessari framsetningu er að gera sveitarfélögum auðveldara að nálgast upplýsingar og nýta þær við fjárhagsáætlanagerð og stefnumótun. Með myndrænni birtingu og aðgangi að ítargögnum á einum stað verða lykilupplýsingar aðgengilegri og nýtast betur til upplýstrar ákvarðanatöku.

Forsendur fjárhagsáætlana 2027- 2031