Sambandið
Fimm hlutu Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2025
14. maí 2025
Í gær fór fram afhending Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2025 á Nýsköpunardegi hins opinbera, þar sem fimm framúrskarandi verkefni og einstaklingar hlutu viðurkenningu fyrir árangur sinn á sviði opinberrar nýsköpunar.
Verðlaunin eru veitt í samstarfi Sambandsins og Fjársýslunnar í þeim tilgangi að varpa ljósi á öflugt umbótastarf og nýsköpun sem eykur gæði og skilvirkni í opinberri þjónustu.
Verðlaunahafar ársins 2025 eru:
- Hafnarfjarðarbær
Fyrir leiðandi umbótastarf við stafræna umbreytingu í þjónustu og rekstri sveitarfélagsins. - Bílastæðasjóður
Fyrir nýsköpun og breytingar á framkvæmd eftirlits með stöðvunarbrotum. - Benedikt Geir Jóhannesson
Fyrir öflugt einstaklingsframtak við hagnýtingu gervigreindar í umbótaverkefnum og framúrskarandi árangur í opinberri nýsköpun. - Réttarvörslugáttin
Fyrir stafvæðingu réttarvörslukerfisins og betri samvinnu milli stofnana innan dómskerfisins. - Skatturinn
Fyrir nýtingu gagna og tækninýjunga til að efla þjónustu stofnunarinnar við almenning.
Verðlaunin sýna fjölbreytileika nýsköpunar í opinbera geiranum, allt frá tækniinnleiðingu og gagnadrifinni stefnumótun yfir í notendamiðaðar lausnir og þróun þjónustu við almenning. Hver verðlaunahafi setur fordæmi fyrir hvernig frumkvæði og fagmennska geta umbreytt opinberri þjónustu til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.
Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þökkum framlag þeirra til opinberrar nýsköpunar.