Stjórnsýsla

Ein­föld­un á reglu­verki um verk­efni sveit­ar­fé­laga

4. febrúar 2026

Sambandið vekur athygli á vefkönnun innviðaráðuneytisins þar sem óskað eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga.

Öll ráðuneyti í Stjórnarráðinu koma að verkefninu með tengingu við málaflokka sína en innviðaráðuneytið heldur utan um verkefnið. Allir eiga kost á því að senda inn tillögur og ábendingar með þátttöku í könnuninni sem birt er í samráðsgátt stjórnvalda. Frestur er til og með 10. mars nk.

Sjá frétt um verkefnið á vef innviðaráðuneytisins.