Ungmennaráð
Aukin áhersla á virkt samráð við ungmenni í sveitarfélögum
26. júní 2025
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur að undanförnu unnið markvisst að því að undirbúa vinnu þar sem verður lögð áhersla á að styðja við uppbyggingu virkra ungmennaráða í sveitarfélögum landsins og efla samráð við börn og ungmenni.

Þann 3. september nk. býður Sambandið starfsfólki ungmennaráða sveitarfélaga til fundar þar sem undirbúningasvinnan verður kynnt og farið yfir niðurstöður kortlagningar á starfsemi ungmennaráða. Markmið fundarins er að skilgreina hvað felst í virku ungmennaráði og greina hvar Sambandið getur veitt sveitarfélögum stuðning við að efla sín ráð.
Skráðu þig á fundinn 3. september.
Námskeið um ungmennaráð í Sveitarfélagaskólanum
Samhliða þessu er unnið að þróun nýs námskeiðs í Sveitarfélagaskólanum sem sérstaklega er ætlað núverandi og framtíðar fulltrúum í ungmennaráðum. Þar verður lögð áhersla á fræðsluefni sem auðveldar ungmennum að skilja hlutverk og starfsemi sveitarstjórnarstigsins. Námskeiðið verður kynnt fyrir starfsfólki ungmennaráða á haustmánuðum.
Að lokum vinnur Sambandið að undirbúningi viðburðar þar sem fulltrúar ungmennaráða og starfsfólk ungmennaráða á landsvísu verða leidd saman. Markmið viðburðarins er að skapa vettvang fyrir samráð og hlustun, þar sem börn og ungmenni fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif á forgangsröðun og áherslur Sambandsins. Upplýsingar um þennan viðburð og vinnu í tengslum við ungmennaráð munu berast til sveitarfélaga næsta haust.