Mannréttindi
Auglýst eftir aðilum til setu í ráðgjafarnefnd Mannréttindastofnunar Íslands
26. júní 2025
Stjórn Mannréttindastofnunar Íslands auglýsir hér með eftir aðilum í ráðgjafarnefnd stofnunarinnar. Ráðgjafarnefndinni er ætlað að styðja Mannréttindastofnun Íslands í störfum sínum með ráðgjöf, upplýsingagjöf og umsögnum eftir því sem þörf krefur.
Skrautnál er vinsælt sumarblóm á Íslandi.
Gert er ráð fyrir að aðilarnir séu fulltrúar félaga, stofnana, samtaka eða hagsmunahópa sem vinna að mannréttindum eða málefnum sem tengjast mannréttindum með einum eða öðrum hætti. Í nefndinni eiga tíu aðilar fast sæti en auglýst er eftir að minnsta kosti tveimur til viðbótar.
Umsóknir sendist á: mannrettindi@mannrettindi.is. Frestur til að skila umsóknum er til 10. júlí næstkomandi.