Fara í aðalefni

Umhverfis Ísland

Vatna­mál­in rædd á árs­fundi Icewa­ter

8. maí 2026

Samband íslenskra sveitarfélaga tók nýverið þátt í öðrum ársfundi LIFE Icewater sem haldinn var Grundarfirði. Grundfirðingar tóku vel á móti um 60 gestum frá þeim sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum sem taka þátt í verkefninu og gestir voru hæstánægðir með móttökur heimamanna.  

LIFE Icewater er viðamikið fimm ára samstarfsverkefni 23 aðila sem hófst í fyrra og er styrkt af LIFE sjóði ESB. Styrkurinn sem fékkst er um 3,5 milljarðar króna og er ætlaður í vinnu við fjölbreytt verkefni til að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.  Verkefninu er ætlað að auka þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns á Íslandi, að tryggja fumlausa og samhæfða stjórnsýslu í vatnamálum, bæta vatnsgæði, svo sem með úrbótum á fráveitu og hreinsun fráveituvatns, og að fræða almenning og hagaðila um mikilvægi vatns.

Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðar, opnaði fundinn.

Á ársfundinum var farið yfir framvindu vinnupakka verkefnisins sem snúa að fjölbreyttum vatnamálum, allt frá vöktun yfirborðsvatns til tæknilegra úrbóta í fráveitumálum. Fundargestir fengu meðal annars kynningu og vettvangsferð um Grundarfjarðarbæ þar sem skoðaðar voru blágrænar ofanvatnslausnir sem Grundarfjarðarbær vinnur nú að sem lið í fráveitumálum sveitarfélagsins. Þar mátti skýrt sjá hvernig blágrænar ofanvatnslausnir bæta bæði umhverfi og styrkja innviði sveitarfélaga.

Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála á Grundarfirði, segir frá blágrænum ofanvatnslausnum.

Seinni hluti fundarins snerist um framtíð vatnamála á Íslandi þar sem kynnt var vinna við nýja vatnaáætlun sem nú er í undirbúningi og mun taka gildi árið 2028. Umhverfis- og orkustofnun stýrði vinnustofu þar sem þátttakendur fundarins unnu saman að móta hugmyndir að aðgerðum fyrir nýja vatnaáætlun.

Eitt af verkefnum Sambandsins í Icewater verður að setja upp síðuna Strauma sem mun þjóna sem miðlægur og aðgengilegur gagnabanki fyrir sveitarfélög til að sækja sér leiðbeiningar og fræðslu í vatnamálum og mun einnig nýtast sem vettvangur fyrir sveitarfélögin sem taka þátt í Icewater til að deila því sem mun lærast í verkefninu með öðrum sveitarfélögum.