Fara í aðalefni

Æskulýðsmál

End­ur­skoð­uð íþrótta­stefna til 2030

4. maí 2026

Endurskoðuð íþróttastefna til ársins 2030 hefur nú verið kynnt. Hún tekur mið af þeim breytingum sem hafa orðið í íþróttastarfi á undanförnum árum, meðal annars með nýjum svæðisstöðvum íþróttahéraða, Afreksmiðstöð Íslands og öðrum mikilvægum umbótum.

Inga Sæland ráðherra íþróttamála með f.v. Gunnari Eysteini Sigurbjörnssyni formanni FÍÆT, Auði Ingu Þorsteinsdóttur framkvæmdastjóra UMFÍ, Arnari Þór Sævarssyni framkvæmdastjóra Sambandsins, Willum Þór Þórssyni forseta ÍSÍ, Andra Stefánssyni framkvæmdastjóri ÍSÍ og Kára Jónssyni frá FÍÆT, ásamt Óskari Þór Ármannssyni og Örvari Ólafssyni frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, við kynningu á íþróttastefnunni í ráðuneytinu
Inga Sæland ráðherra íþróttamála með f.v. Gunnari Eysteini Sigurbjörnssyni formanni FÍÆT, Auði Ingu Þorsteinsdóttur framkvæmdastjóra UMFÍ, Arnari Þór Sævarssyni framkvæmdastjóra Sambandsins, Willum Þór Þórssyni forseta ÍSÍ, Andra Stefánssyni framkvæmdastjóri ÍSÍ og Kára Jónssyni frá FÍÆT, ásamt Óskari Þór Ármannssyni og Örvari Ólafssyni frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, við kynningu á íþróttastefnunni í ráðuneytinu

Stefnan er unnin í sameiningu af ríkinu, sveitarfélögum og íþróttahreyfingunni, sem öll bera ábyrgð á að efla íþróttir í landinu. Megináherslan er skýr: að tryggja börnum, ungmennum og fullorðnum um allt land raunhæft tækifæri til að stunda íþróttir í sínu nærsamfélagi.

Á næstu árum verður sérstök áhersla lögð á að festa nýtt svæðaskipulag í sessi. Markmiðið er að styrkja íþróttafélög víðs vegar um landið, auka samstarf milli landshluta og bæta gæði starfsins. Starfsfólk á svæðunum hefur þegar gegnt mikilvægu hlutverki, meðal annars í tengslum við innleiðingu farsældarráða fyrir börn og ungmenni, og er lykill að betri og heildstæðari þjónustu.

Samræmt skipulag innan svæða á einnig að styðja betur við þjálfara og hvetja fleiri sjálfboðaliða til þátttöku í starfi og stjórnun íþróttafélaga. Þar liggur mikilvægur styrkur fyrir framtíð íslensks íþróttastarfs.

Árangur af samstarfi mennta- og barnamálaráðuneytisins við ÍSÍ og UMFÍ um svæðisbundinn stuðning hefur þegar skilað miklu. Fleiri einstaklingar með fötlun, börn af efnaminni heimilum og fólk með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn hafa nú betri aðgang að íþróttum. Þetta verður áfram eitt helsta áherslumál stefnunnar.

Jafnframt verður áfram unnið markvisst að því að bæta stuðning við afreksíþróttafólk. Nýtt fyrirkomulag afreksstarfs er þegar komið vel á veg og gegnir Afreksmiðstöð Íslands þar lykilhlutverki. Með þessu er verið að styrkja umgjörðina í kringum íþróttafólk sem hefur ítrekað sameinað þjóðina á stórum stundum. Afreksíþróttafólk er ekki aðeins tákn um árangur heldur einnig mikilvægar fyrirmyndir sem sýna hvað metnaður, agi og seigla geta skilað.

Þjóðarleikvangar verða einnig stórt verkefni á næstu árum. Stefnt er að því að ný þjóðarhöll verði tekin í notkun árin 2028 til 2029. Auk þess stendur yfir undirbúningur að frekari uppbyggingu þjóðarleikvangs í knattspyrnu í Laugardal og frumathugun vegna þjóðarleikvangs í frjálsíþróttum.

Íþróttir skipta samfélagið miklu máli, ekki aðeins fyrir líkamlega heilsu heldur einnig andlega vellíðan, aga, samstöðu og þrautseigju. Þegar aðgengi að íþróttum er tryggt fyrir alla eykst ávinningurinn fyrir samfélagið í heild. Endurskoðuð íþróttastefna til 2030 er mikilvægt leiðarljós á þeirri vegferð.

„Endurskoðuð íþróttastefna byggir á víðtæku samstarfi ríkis, sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar og er mikilvægt skref til framtíðar. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki í því að tryggja að íþróttastarf blómstri í nærumhverfi fólks um allt land og því skiptir máli að með nýju svæðaskipulagi sé verið að styrkja slíkt starf, bæta aðgengi fyrir alla og tryggja að börn, ungmenni og fullorðnir hafi raunhæf tækifæri til þátttöku óháð búsetu eða aðstæðum,“ segir Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.