Fara í aðalefni

Sveit­ar­stjórn­ar­vett­vang­ur EFTA

Sveitarstjórnarstigið hefur mikilla hagsmuna að gæta í tengslum við aðild Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið – EES samningurinn.  Af þeim sökum var Sveitarstjórnarvettvangur EFTA settur á fót árið 2010. Þar eiga sæti tólf kjörnir fulltrúar á sveitarstjórnarstigi frá Íslandi og Noregi, auk tveggja áheyrnarfulltrúa frá Sviss.

Markmiðið með vettvanginum er að tryggja aðkomu sveitarstjórnarstigsins að málefnum sem varða EES samninginn og samstarf Íslands við Evrópusambandið.