Evrópusamtök sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga á aðild að Evrópusamtökum sveitarfélaga. Samtökin eru stærstu samtök sveitarstjórnarstigsins í Evrópu. Aðild að þeim eiga yfir 50 landssambönd bæja, sveitarfélaga og héraða frá 39 löndum Evrópu. Samtökin eru í forsvari fyrir um 100.000 sveitarfélög og héruð í Evrópu.
Samtökin vinna að framgangi hugsjóna um sameinaða Evrópu sem grundvallist á sjálfsstjórnarrétti sveitarfélaga og lýðræðislegum gildum. Til þess að ná þessu markmiði leitast samtökin við að hafa áhrif á framtíð Evrópu með því að koma framlagi sveitarfélaga á framfæri og með því að hafa áhrif á evrópska löggjöf og stefnumótun.