Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins
Sveitarstjórnarþingið er ein af meginstofnunum Evrópuráðsins. Hlutverk þingsins er að styrkja staðbundið lýðræði í aðildaríkjum Evrópuráðsins og gegnir það ráðgefandi hlutverki gagnvart ráðherranefnd Evrópuráðsins.
Á þinginu eiga sæti kjörnir fulltrúar frá sveitarfélögum og svæðum í Evrópu. Þingfulltrúar eru 324 talsins og þeir eru fulltrúar yfir 150.000 sveitarfélaga og svæða í Evrópu. Þingið starfar í tveimur deildum, sveitarfélaga- og svæðadeild og líka í einni sameiginlegri deild. Þing eru haldin tvisvar á ári í höfuðstöðvum Evrópuráðsins í Strasbourg. Þingfulltrúar skiptast í landsdeildir og fjórar pólitískar fylkingar. Þrjár nefndir starfa á milli þinga til undirbúa mál sem fjallað er um á þingunum. Þær eru eftirlitsnefnd, stjórnunarnefnd og nefnd sem fjallar um mál sem efst eru á baugi hverju sinni.