Evrópsk samstarfsverkefni
Á vegum Evrópusambandsins eru reknar viðamiklar samstarfsáætlanir sem miða að því að auka félagslegan og efnahagslegan jöfnuð innan aðildarríkja sambandsins og styðja við framþróun og hagvöxt. Samstarfsáætlanirnar styrkja opinbera aðila, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga.
Núverandi tímabil stendur yfir frá 2021-2027. Að þessu sinni er lögð áhersla á verkefni sem tengjast loftslagsmarkmiðum Evrópusambandsins. Stefnt er að sem mestri samþættingu samtarfsáætlananna við loftslagsmarkmiðin og því er 25% fjármagnsins eyrnamerkt verkefnum á sviði loftslagsmála.
Ísland tekur þátt í nokkrum samstarfsáætlunum sem eiga mikið erindi við íslensk sveitarfélög. Þar má m.a. nefna Horizon Europe, rannsóknar- og nýsköpunaráætlun; LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun og Digital Europe, samstarfsáætlun um stafræna þróun. Þessar áætlanir fela í sér tækifæri fyrir íslensk sveitarfélög þar sem umhverfismál, loftslagsmál og stafræn þróun eru allt málaflokkar sem eru mikilvægir fyrir sveitarfélög.