Fara í aðalefni

Hvað getum við gert fyrir þig?

Leitarniðurstöður

Hagnýtar upplýsingar fyrir sveitarstjórnarfólk

Sambandið vinnur að eflingu íslenskra sveitarfélaga og sinnir hagsmunamálum þeirra gagnvart ríkisvaldinu og öðrum aðilum, bæði innanlands og utan. Það mótar sameiginlega stefnu sveitarfélaga og á í virku samráði við ríkisstjórn og Alþingi.

Sambandið er viðurkennt í sveitarstjórnarlögum sem sameiginlegur málsvari sveitarfélaga og sinnir meðal annars:

· Hagsmunagæslu sveitarfélaga gagnvart ríki · Að vera sameiginleg rödd sveitarstjórnarstigsins · Stuðningi við faglega og vandaða stjórnsýslu · Að vera samráðsvettvangur milli sveitarfélaga

Sambandið veitir ráðgjöf og stuðning til kjörinna fulltrúa og starfsfólks sveitarfélaga.

Ráðgjöf og stuðningur

· Lögfræðiráðgjöf (t.d. stjórnsýslulög, sveitarstjórnarlög). · Almenn ráðgjöf og leiðbeiningar um málaflokka sveitarfélaga. · Almennar leiðbeiningar um réttindi og skyldur kjörinna fulltrúa. · Ýmsar leiðbeiningar á vef okkar. · Fyrirmyndir að reglum og verklagi

Hér að neðan finnur þú tengla á ýmsar gagnlegar upplýsingar um þjónustu Sambandsins.