Fara í aðalefni

Fræðsla og upp­lýs­inga­miðl­un

Samband íslenskra sveitarfélaga gegnir mikilvægu hlutverki fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga. Í sveitarstjórnarlögum er Samband íslenskra sveitarfélaga viðurkennt sem sameiginlegur málsvari sveitarfélaganna og í gildi er sérstakur samstarfssáttmáli við ríkisstjórn Íslands, þar sem með formlegum hætti er kveðið á um samskipti þessara tveggja stjórnvalda.

Fræðsla og upplýsingamiðlun ýmiskonar er sívaxandi hluti af starfseminni og gegnir upplýsinga- og samskiptavefur Sambandsins þar lykilhlutverki.

Sveitarfélagskólinn

Sambandið hefur gert námskeið fyrir nýja og starfandi kjörna fulltrúa í samstarfi við Háskólann í Reykjavík sem nefnist Sveitarfélagaskólann. Við hvetjum kjörna fulltrúa í sveitarstjórn til að kynna sér þau fjölbreyttu námskeið sem þar eru í boði.

Að auki mun Sambandið bjóða upp á stutt fjarnámskeið eftir kosningar um mikilvæg atriði fyrir kjörna fulltrúa. Vorið 2027 er stefnt á að halda fræðslunámskeið í öllum landshlutum.

Ráðhúsið og ráðhúsfræðsla

Sambandið heldur úti hlaðvarpinu Ráðhúsið og efnir til Ráðhúsfræðslu á vef eftir því sem efni standa til. Fyrsta Ráðhúsfræðslan verður þriðjudaginn 19. maí kl. 12:00, skráning fer fram hér. Á þeim fundi verður fjallað um:

  • Hlutverk Sambandsins
  • Fyrsti fundur sveitarstjórnar
  • Ráðning framkvæmdastjóra

Fundir og ráðstefnur

Við höldum reglulega ráðstefnur og minni fundi. Fjármálaráðstefnan er okkar langstærsti viðburður, hún er haldin árlega að hausti og er opin fyrir alla kjörna fulltrúa. Landsþing Sambandsins fer fram árlega í samræmi við Samþykktir Sambandsins. Landsþingið er fulltrúaþing sem einungis þeir sem valdir hafa verið af hverri og einni sveitarstjórn sitja.

Hér má finna upplýsingar um alla okkar viðburði.

Þjónustugátt

Þá heldur Sambandið úti þjónustugátt og beinum við þeim tilmælum til kjörinna fulltrúa og starfsfólks að það beini almennum fyrirspurnum þangað. Netfang þjónustugáttar er thjonustugatt@samband.is svörum við fyrirspurnum sem þangað berast eins skjótt og verða má.

Skrifstofan

Skrifstofa okkar er á fimmtu hæð í Borgartúni 30 í Reykjavík. Á skrifstofunni starfa 35 starfsmenn með fjölbreyttan bakgrunn og víðfema þekkingu í málefnum sveitarfélaga. Sambandið deilir húsnæðinu og hluta starfsfólks með Lánasjóði sveitarfélaga ohf. en þar starfa þrír starfsmenn.