Fara í aðalefni

Hags­muna­gæsla og stefnu­mót­un

Samband íslenskra sveitarfélaga sinnir hagsmunagæslu fyrir sveitarfélög gagnvart Alþingi, ráðuneytum og ríkisstofnunum og á í samráði við ríkið um málefni sveitarfélaga. Sambandið veitir umsagnir um frumvörp, reglugerðir og stefnumótandi áætlanir ríkisins. Þá fer fram stefnumótandi vinna fyrir sveitarstjórnarstigið.

Hvað gerir Sambandið ekki?

Sambandið er hagsmunaaðili sveitarfélaga og styður starf þeirra – en tekur ekki yfir hlutverk þeirra.

Sambandið:

· Tekur ekki ákvarðanir fyrir sveitarfélög eða kjörna fulltrúa

· Veitir ekki persónulega ráðgjöf utan hlutverks kjörinna fulltrúa

· Tekur ekki við kvörtunum frá íbúum eða leysir úr einstökum málum þeirra

· Kemur ekki í stað stjórnsýslu eða starfsmanna sveitarfélaga

· Veitir ekki bindandi lögfræðileg álit (leiðbeiningar en ekki úrskurði)

· Sinnir ekki daglegri verkefnastjórnun innan sveitarfélaga

· Tekur ekki þátt í pólitískri ákvörðunartöku einstakra sveitarfélaga

· Er ekki eftirlitsaðili með sveitarfélögum.

Sambandið styður, ráðleggur og samhæfir, en ábyrgð og ákvarðanataka er alltaf hjá sveitarfélaginu sjálfu.