Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 80,8 m.kr. til 30 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2025–2026.
Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Umsýsla er hjá Rannís. Áherslusvið sjóðsins árið 2025 voru:
- Leikurinn sem leið til náms
- Gervigreind
- Grunnþáttur menntunar - Læsi
Samtals barst sjóðnum 61 umsókn að undangenginni auglýsingu. Samanlagðar fjárbeiðnir námu alls 204,4 m.kr..
Á gagnatorgi Rannís er hægt að sjá yfirlit styrktra verkefna Sprotasjóðs og nánari upplýsingar um hvert verkefni með því að velja númer verkefnis fremst í töflu.
Á gagnatorgi Rannís er einnig hægt að nálgast upplýsingar um styrkt verkefni Sprotasjóðs frá árinu 2022 og stutt lýsing úr lokaskýrslu birtist eftir að verkefni er lokið.
Eftirfarandi verkefni hlutu styrk árið 2025: