Sambandið
Samband íslenskra sveitarfélaga 80 ára í dag
11. júní 2025
Samband íslenskra sveitarfélaga fagnar 80 ára afmæli í dag, 11. júní, og af því tilefni var sérsök afmælisráðstefna haldin á Iceland Parliament Hotel að viðstöddum á annað hundrað gesta.

Á dagskrá ráðstefnunnar voru fjölbreytt erindi um sögu og þróun sveitarfélaga, og áskoranir sem mæta sveitarfélögum framtíðarinnar.
Jón Björn Hákonarson, formaður stjórnar Sambandsins opnaði ráðstefnuna og sagði í ávarpi sínu að samvinna ríkis og sveitarfélaga væri mikilvæg. „Við stöndum bæði frammi fyrir brýnum málum sem þarf að leysa og fjölda tækifæra til að ná árangri fyrir íslenskt samfélag. Það gerum við betur saman en í sitthvoru lagi. Það er samvinnan í sinni tærustu mynd og að mínu mati náum við ekki árangri nema hafa hana að leiðarljósi,“ sagði Jón Björn í ávarpi sínu.
Stofnþing Sambandsins var haldið í Reykjavík dagana 11.-13. júní 1945 í sal neðri deildar Alþingis í Alþingishúsinu við Austurvöll. Frumkvöðullinn að stofnun sambandsins var Jónas Guðmundsson, eftirlitsmaður sveitarstjórnarmálefna hjá hinu opinbera.
Sambandið hefur frá upphafi unnið að eflingu íslenskra sveitarfélaga og að hvers konar hagsmunamálum þeirra. Verulegur hluti starfseminnar felst í hagsmunagæslu fyrir sveitarfélögin gagnvart ríkisvaldinu og öðrum innlendum og erlendum aðilum.
Þannig er hlutverk Sambandsins fyrst og fremst fólgið í að vera sameiginlegur málsvari sveitarfélaganna í landinu og vinna að sameiginlegum hagsmunamálum þeirra og samstarfi. Kallar það á að Sambandið hefur náin samskipti við ríkisstjórn og Alþingi, hverju sinni, fyrir hönd sveitarfélaganna.