Fara í aðalefni

Fjármálaráðstefna

Upp­selt á Fjár­mála­ráð­stefnu sveit­ar­fé­laga 2024

3. október 2024

Uppselt er á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2024. Skráningin var með nýju sniði að þessu sinni en skráðir þátttakendur voru orðnir rétt tæplega 500 talsins viku fyrir ráðstefnuna. Fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica 10.-11. október 2024. Skráðir þátttakendur fengu að skráningu lokinni sent rafrænt aðgangskort á ráðstefnuna sem þarf að hlaða niður í síma þátttakanda eða prenta út. Skanna þarf aðgangskortið við komu á ráðstefnuna.

Smábátar við höfn á Djúpavogi. Ljósm.: Sambandið / Ingibjörg Hinriksdóttir
Smábátar við höfn á Djúpavogi. Ljósm.: Sambandið / Ingibjörg Hinriksdóttir