Menntun
Niðurstöður PISA sýna að þörf er á nýrri nálgun
8. september 2026
Nýjar niðurstöður PISA-rannsóknarinnar undirstrika mikilvægi þess að halda áfram markvissri vinnu við að efla íslenskt menntakerfi.

Sveitarfélög landsins bera ábyrgð á rekstri og framkvæmd grunnskólastarfs og ætla að leggja sitt af mörkum til að mæta þeim áskorunum sem niðurstöðurnar draga fram. Mikilvægast er að niðurstöðurnar leiði til aðgerða og raunverulegra umbóta.
Á undanförnum árum hafa sveitarfélög ráðist í fjölmörg verkefni sem miða að því að bæta gæði skólastarfs, styðja betur við stjórnendur og starfsfólk skóla og skapa börnum og ungmennum betri námsaðstæður.
Þar má meðal annars nefna Virðismatsvegferðina sem hefur það að markmiði að styrkja stöðu skólakerfisins og gera það betur í stakk búið til að takast á við þær áskoranir sem það stendur frammi fyrir og tryggja um leið þann sveigjanleika sem nauðsynlegur er til að unnt sé að skipuleggja störf í skólum þannig að hæfi þörfum starfseminnar og stuðli að betri árangri og bættri líðan nemenda. Um leið á að bæta starfsaðstöðu kennara og auka möguleika þeirra á að samþætta vinnu og einkalíf.
„Þessar niðurstöður eru áhyggjuefni fyrir alla sem koma að menntun barna. Það er ljóst að skólakerfið stendur frammi fyrir áskorunum, en það er ekki síður ljóst að þær verða ekki leystar nema með auknu samstarfi og sameiginlegri sýn. Sveitarfélög bera ábyrgð á sínum hluta verkefnisins og við hlaupumst ekki undan þeirri ábyrgð. Við þurfum hins vegar líka að horfa fram á veginn og einbeita okkur að þeim aðgerðum sem geta skilað raunverulegum árangri fyrir börn og ungmenni. Sveitarfélögin vilja taka virkan þátt í þeirri vegferð og eru tilbúin til samstarfs,“ segir Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.