Stafræn vegferð
Samkomulag undirritað um þróun og rekstur Upplýsingaveitu sveitarfélaga
3. september 2026
Sambandið hefur, ásamt ríkinu og Hagstofu Íslands, undirritað samkomulag um endurbætur, þróun og rekstur á Upplýsingaveitu sveitarfélaga.

Markmiðið með verkefninu er að skapa betri forsendur fyrir greiningu, upplýsingamiðlun og upplýsta ákvörðunartökutöku hjá sveitarfélögum og öðrum hagaðilum.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra og Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins fyrir hönd ríkisins, Jón Björn Hákonarson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Margrét Kristín Indriðadóttir sviðsstjóri hjá Hagstofu Íslands skrifuðu undir samkomulagið.
Upplýsingaveita sveitarfélaga er sameiginlegur gagnagrunnur ríkis og sveitarfélaga sem heldur utan um samræmdar fjárhagsupplýsingar sveitarfélaga. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur leitt umfangsmikla endurhönnun upplýsingaveitunnar og mun taka yfir gagnasöfnun frá Hagstofu Íslands.
Samkomulagið felur í sér að Upplýsingaveitan verði rekin sem sameiginlegt verkefni samningsaðila en að Sambandið annist þróun, rekstur og hýsingu. Stýrihópur skipaður fulltrúum allra aðila mun fara með stefnumótandi ákvörðunartöku um áframhaldandi þróun og rekstur kerfisins.
Þá verður lögð áhersla á að tryggja áreiðanleika og samfellu í opinberri gagnaöflun. Hagstofa Íslands mun áfram hafa aðgang að gögnum Upplýsingaveitunnar svo stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu við söfnun, vinnslu og miðlun opinberra hagtalna..
Upplýsingaveitan hefur verið þróuð og endurhönnuð undanfarin misseri og er hluti af stærra verkefni sem miðar að því að auka sjálfvirkni í skilum fjárhagsupplýsinga, bæta gæði gagna og samanburð milli sveitarfélaga.