Umhverfis Ísland

Um­hverf­is- og inn­viða­nefnd Sam­bands­ins tek­ur til starfa

16. maí 2025

Umhverfis- og innviðanefnd Sambandsins hefur nú tekið til starfa og mun hún sinna ráðgefandi hlutverki fyrir stjórn Sambandsins í umhverfis- og innviðamálum sveitarfélaga.

Umhverfis- og innviðanefnd Sambandsins hefur nú tekið til starfa og sitja eftirfarandi fulltrúar í nefndinni:

  • Hjördís Ýr Johnson, formaður
  • Guðný Birna Guðmundsdóttir
  • Anton Kári Halldórsson
  • Lovísa Jónsdóttir
  • Stefán Aspar Stefánsson
  • Jón Viggó Gunnarsson
  • Hjörleifur Finnsson

Nefndin er ráðgefandi fyrir stjórn Sambandsins í umhverfis- og innviðamálum sveitarfélaga. Helstu verkefni nefndarinnar eru m.a. umhverfis- og loftlagsmál, fráveitumál, skipulags- og húsnæðismál, náttúruvernd, orkumál og samgöngumál. Mun nefndin taka þátt í undirbúningi stefnumörkunar Sambandsins á þessum sviðum, og veita álit á stefnumótun, frumvörpum og opinberum áætlunum, vekja athygli á málum sem þarfnast úrlausnar á vettvangi Sambandsins og vera til ráðgjafar varðandi ýmis mál og viðburði sem tengjast málefnasviðinu. Þannig styrkir nefndin umhverfis- og innviðateymi Sambandsins í sínum störfum og er ráðgefandi um markmið og verkefni teymisins. Formaður nefndarinnar er jafnframt tengiliður hennar inn í stjórn Sambandsins.

Nefndin mun funda eftir þörfum og verður hægt að nálgast fundargerðir á vef Sambandsins.

„Það er virkilega spennandi að fá að vinna með öflugu fólki í nefndinni og sveitarfélögum um land allt að því að móta framtíðarsýn og lausnir í umhverfis- og innviðamálum, með sjálfbæra þróun og öfluga innviði að leiðarljósi.“ - Hjördís Ýr Johnson, formaður umhverfis- og innviðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga