Menntun
Sveitarfélög leiðandi í kostnaðarþátttöku við skólamáltíðir barna samkvæmt skýrslu starfshóps
27. júní 2025
Út er komin skýrsla starfshóps, sem innviðaráðherra skipaði til að leggja mat á nýtingu og áhrif gjaldfrjálsra skólamáltíða.

Í skýrslunni kemur fram að það sé mat starfshópsins að mikill ávinningur hljótist af gjaldfrjálsum skólamáltíðum. Er það meðal annars byggt á spurningakönnunum til foreldra, skólastjórnenda og sveitarfélaga. Þá eru sveitarfélög leiðandi í kostnaðarþátttöku við skólamáltíðir barna, en ríkið tók yfir 75% af kostnaðarþátttöku foreldra/forráðamanna vegna skólamáltíða í fyrra. Sveitarfélögin greiða 25% af því sem foreldrar/forráðamenn greiddu áður, til viðbótar við þann kostnað sem sveitarfélögin stóðu undir vegna skólamáltíða áður en þær urðu gjaldfrjálsar.
Það er mat starfshópsins að vel hafi tekist til á fyrsta skólaári eftir að skólamáltíðir í grunnskólum urðu gjaldfrjálsar. Ávinningurinn væri skýr fyrir grunnskólabörn en svara þurfi nokkrum spurningum varðandi verkefnið til framtíðar.
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir voru liður í aðgerðum ríkis og sveitarfélaga árið 2024 til að styðja við gerð langtímakjarasamninga á vinnumarkaði og leggja grundvöll að bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks. Alþingi samþykkti í fyrra að heimila Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að greiða sveitarfélögum sem bjóða upp á skólamáltíðir framlög á árunum 2024-2027.
Helstu niðurstöður
Starfshópurinn vann þrjár spurningakannanir til að meta reynslu af gjaldfrjálsum skólamáltíðum og kalla eftir ábendingum. Ein var lögð fyrir sveitarfélög, önnur fyrir stjórnendur grunnskóla og sú þriðja fyrir foreldra/forráðafólk barna í grunnskóla. Foreldrakönnunin var gerð á íslensku, ensku og pólsku.
Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar eru foreldrar og forráðafólk grunnskólabarna ánægð með verkefnið. Alls kváðust 81% vera mjög eða nokkuð jákvæð með verkefnið en aðeins 7% lýstu sig nokkuð eða mjög neikvæð gagnvart því.
Í skýrslunni segir að skólastjórnendur sjái mikinn ávinning af verkefninu og lýsi litlum eða engum áskorunum, en þar sem þær eru nefndar snúast þær einkum um áhyggjur af matarsóun og fjármögnun.
Sveitarfélög sjá einnig ávinning af gjaldfrjálsum skólamáltíðum sem felist í því að öllum börnum eru tryggðar skólamáltíðir óháð efnahag og fleiri börn nýti máltíðirnar. Ávinningurinn væri þó ekki án áskorana þar sem kostnaður hafi aukist hjá meirihluta sveitarfélaga, s.s. vegna fjölgunar nemenda sem nýti skólamáltíðir, mótframlag ríkisins nemi einungis hluta af heildarkostnaði, auk þess sem verð á matvöru fari hækkandi.
Loks kemur fram í skýrslunni að skráning barna í skólamáltíðir hefur aukist í öllum bekkjum eftir að þær urðu gjaldfrjálsar, mest í eldri bekkjum þar sem þátttaka var minni fyrir.
Sex ábendingar settar fram
Starfshópurinn setur fram sex ábendingar til stjórnvalda, ríkis og sveitarfélaga. Unnið verður úr þeim ábendingum á vettvangi ríkis og sveitarfélaga.
- Rannsaka þarf matarsóun og gera íhlutanir til að minnka hana.
- Hafa þarf eftirlit með gæðum máltíða og næringarinnihaldi.
- Tryggja þarf fjármagn fyrir gæðaríkri skólamáltíð.
- Tryggja þarf að til staðar séu upplýsingar sveitarfélaga um raunkostnað.
- Skýra þarf hvort gjaldfrjálsar skólamáltíðir eigi eingöngu við um hádegisverð eða alla málsverði á skólatíma.
- Taka þarf ákvörðun um framhald verkefnisins þegar því lýkur árið 2027.
Um starfshópinn
Innviðaráðherra skipaði starfshópinn í janúar sl. til að leggja mat á nýtingu og áhrif framlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða. Starfshópurinn var þannig skipaður:
- Jóhanna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri í innviðaráðuneytinu, fulltrúi innviðaráðherra og formaður starfshópsins
- Þór Hauksson Reykdal, verkefnastjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu, fulltrúi mennta- og barnamálaráðherra
- Ellen Alma Tryggvadóttir, doktor í næringarfræði og verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Helgi Aðalsteinsson, rekstrarhagfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.