Fimmtudaginn 30. október fór fram viðburðurinn Sveitarfélag ársins 2025 en þar voru kynntar niðurstöður úr árlegri könnun Gallup um starfsánægju í sveitarfélögum landsins.

Hrund Hlöðversdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðssjóðsins Heklu, opnaði viðburðinn og fór í stuttu máli yfir tilurð verkefnisins og hlutverk sjóðsins í því að styðja við mannauðsþróun innan sveitarfélaga. Að lokinni setningu Hrundar fluttu Sædís Lind Másdóttir og Fríða Hansen tónlistaratriði.
Eftir tónlistaratriðið hélt Tómas Bjarnason frá Gallup erindi undir yfirskriftinni „Er starfsfólk sveitarfélaganna ánægt í starfi? Hvað skapar starfsánægju og af hverju er hún mikilvæg?“ Þar fjallaði hann um helstu niðurstöður könnunarinnar og dró fram lykilþætti sem hafa áhrif á starfsánægju, svo sem traust, samskipti og góða stjórnun. Í máli Tómasar kom fram að sterk tengsl séu milli starfsánægju, lífsánægju og árangurs vinnustaða.
Árný Erla Bjarnadóttir, formaður FOSS stéttarfélags, afhenti svo viðurkenningar þeim sveitarfélögum sem hlutu efstu sæti í könnunni Sveitarfélag ársins 2025. Þau sveitarfélög eru:
1. Bláskógarbyggð
2. Grímsnes- og Grafningshreppur
3. Hrunamannahreppur
4. Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Sveitarfélögum er boðið að taka þátt í könnuninni fyrir hönd alls síns starfsfólks og hefur þátttaka aukist ár frá ári. Könnunin er ein af stærri vinnumarkaðskönnunum sem framkvæmd er hér á landi. 
Frekari upplýsingar og upptöku frá viðburðinum nálgast hér.