Fara í aðalefni

Stafræn vegferð

Mik­il ánægja með staf­ræna ráð­stefnu sveit­ar­fé­laga 2026

29. apríl 2026

Stafræn ráðstefna sveitarfélaga 2026, sem haldin var 25. mars síðastliðinn, tókst vel til og viljum við þakka ykkur sem mættuð og tóku þátt. Við erum mjög ánægð með útkomuna, en það seldist upp á ráðstefnuna.

Úr svörum á ráðstefnumati má sjá að almennt var mikil ánægja með ráðstefnuna, bæði í heild og þegar litið er til einstakra þátta. Þegar litið er til ráðstefnunnar í heild þá sögðust 85% vera frekar eða mjög ánægð með hana, og skoruðu þar hæst aðstaðan og skipulagið.

Ráðstefnugestum stóð til boða að taka þátt í happdrætti sem í fólst að taka samtalið við nokkra af kynningarbásunum á staðnum. Tæpur þriðjungur ráðstefnugesta tók þátt og endurspeglar svörunin því að ánægja þeirra sem tóku þátt í happdrættinu hafi verið mikil. Dregnir voru út tveir heppnir vinningshafar sem fengu vinninginn sendann í pósti.