Fara í aðalefni

Menntun

Stuðn­ing­ur við skóla og frí­stunda­starf um  mót­töku og mennt­un barna og ung­menna með fjöl­breytt­an bak­grunn

17. mars 2026

Um árabil hefur Jöfnunarsjóður sveitarfélaga veitt fjármagni til stuðnings og ráðgjöf kennurum í leik- grunnskólum á landsvísu og hefur verið í gildi sérstakur samningur þess efnis á milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og Menntamálastofnunar. 

Með tilkomu Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu var ákveðið að leggjast í endurskoðun á fyrirkomulaginu og tengja það beint við þróunarverkefnið Menntun – Móttaka – Menning (MEMM) til ársloka 2026.  Var það gert með undirritun um breytingu á samningnum 12. mars sl.

MEMM er tveggja ára þróunarverkefni leitt af mennta‑ og barnamálaráðuneytinu í samvinnu við Reykjavíkurborg og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.  Verkefnið miðar að því að þróa samræmt verklag um menntun og móttöku barna  og efla stuðning, ráðgjöf og fræðslu til  skóla- og sveitarfélög á grunni þess. . Reykjavíkurborg leggur verkefninu til þekkingu og verkfæri frá  Miðju máls og læsis, sem varð hluti af MEMM á landsvísu frá því að verkefnið hófst vorið 2024.   Á grundvelli MEMM voru ráðnir þrír sérfræðingar leik-, grunn- og framhaldsskóla ásamt fjórum brúarsmiðum til MMS sem ásamt sérfræðingum MML og sérfræðingi Jöfnunarsjóðs í málaflokknum  mynda þann hóp sem kemur að þróun þjónustu við sveitarfélög og skóla vegna barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Framtíðarsýn MEMM er að byggja upp sjálfbæra, samræmda og faglega móttöku‑ og menntun   þar sem börn og fjölskyldur með fjölbreyttan tungumála‑ og menningarbakgrunn fá jafnan og markvissan stuðning, óháð búsetu. Verkefnið miðar að því að sameina sérfræðiþekkingu, styrkja samstarf og tryggja að sveitarfélög hafi aðgang að sameiginlegu baklandi sem getur stutt við  sem sinnir ráðgjöf og veitir stuðning í  flóknum málum á landsvísu.

Með breytingu á eldri samning er lagt til að hann gildi aðeins út árið 2026 en fram að þeim tíma verði unnið að því að útfæra tillögur og útfærslur um áframhaldandi stuðning til sveitarfélaga landsins, leik- grunnskóla og frístundastarfs, um móttöku og menntun barna og fjölskyldna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.