Skipulagsmál

Skipu­lags­dag­ur­inn 2025

30. september 2025

Skipulagsdagurinn 2025 fer fram þann 23. október, kl. 9-16 í Háteig á Grand hóteli og í beinu streymi.

Skipulagsdagurinn er árleg ráðstefna Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skipulagsmál. Venju samkvæmt beinum við sjónum að því sem efst er á baugi í skipulagsmálum.

Dagskrá dagsins skiptist niður í fjóra hluta. Fyrir hádegi er sjónum beint að gæðum í hinu byggða umhverfi og jafnframt verður þörf fyrir húsnæðisuppbyggingu skoðuð. Eftir hádegi verður fjallað um möguleika við notkun gervigreindar við gerð skipulags. Í lokin verður fjallað um loftslagsvæna landnýtingu.

Að vanda verður fjölbreyttur hópur frummælenda og sérfræðinga í pallborðsumræðum. Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur og má þá nálgast á vef Skipulagsstofnunar.

Fagfólk, kjörnir fulltrúar og allt áhugafólk um skipulag er hvatt til að taka daginn frá. Þátttökugjald er 10.000 krónur en innifalin er morgunhressing, hádegisverður og síðdegishressing. Þátttökugjald fyrir nema er 5.000 krónur.  

Skráningarsíða fyrir Skipulagsdaginn 2025