Fara í aðalefni

Umhverfis Ísland

Styrk­ir til sveit­ar­fé­laga vegna end­ur­heimt­ar vist­kerfa í ferskvatni

28. ágúst 2026

Sambandið vekur athygli á styrkjum til endurheimtar vistkerfa í ferskvatni.

Um er að ræða styrki allt að 100.000 evra (um 14,1 milljón króna) til sveitarfélaga og svæðisbundinna yfirvalda. Styrkirnir eru veittir í gegnum verkefni fjármagnað af Horizon Europe (Mission Ocean&Waters) en slíkar umsóknir eru mun einfaldari en hefðbundnar Evrópuumsóknir. Frestur til að sækja um styrkina er til 30. september 2026.

 Þann 16. september verður haldinn upplýsingafundur um styrkina og Sambandið hvetur áhugasöm sveitarfélög til að kynna sér málið.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu SUNDANSE.