Fara í aðalefni

Saga nýr að­al­hag­fræð­ing­ur Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga

Saga Guðmundsdóttir hefur verið ráðin aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún hefur starfað sem hagfræðingur undanfarin 10 ár og í störfum sínum sinnt greiningum á stöðu og horfum í efnahags- og fjármálum.

Saga Guðmundsdóttir aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Saga Guðmundsdóttir aðalhagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Saga hefur undanfarin ár starfað sem hagfræðingur á skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem hún hefur sinnt margvíslegum verkefnum, má þar nefna efnahagslegar greiningar og ráðgjöf, og haft umsjón með ýmsu alþjóðasamstarfi. Þá sinnir hún samskiptum við lánshæfismatsfyrirtækin Moodys, Fitch og S&P sem meta lánshæfi ríkissjóðs auk þess sem hún er í samninganefnd ríkisins en nefndin annast alla kjarasamningagerð. Áður starfaði hún sem ráðgjafi hjá RBB Economics í Stokkhólmi, sem er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki með sérhæfingu á sviði samkeppnismála.

Hún lauk meistaraprófi í hagfræði frá Barcelona Graduate School of Economics árið 2017, með áherslu á rekstrarhagfræði, þjóðhagfræði og hagrannsóknir, og B.Sc. námi í hagfræði frá Háskóla Íslands.

Í starfi aðalhagfræðings mun Saga veita sveitarfélögum faglega ráðgjöf í efnahagsmálum. Aðalhagfræðingur mun bera ábyrgð á að framkvæma greiningar á efnahagslegum áhrifum gagnvart sveitarfélögum, taka þátt í að móta stefnu Sambandsins í efnahagsmálum, leggja mat á hagræna þróun sveitarstjórnarstigsins og miðla upplýsingum því tengdu til sveitarfélaga og hagaðila.